Frétt — Enter — 30. 5. 2007
Óvenju mikið um dauðageisla í þéttbýli
Hér sést dæmigerður grænn dauðageisli lenda á jörðinni (myndin er sviðsett).

Óvenju mikið hefur verið um svokallaða dauðageisla á höfuðborgarsvæðinu í dag, einkum í miðbæ Reykjvíkur.

Er fólk beðið að hafa vara á sér ef það á leið um opin svæði því dauðageislar eru, eins og nafnið gefur til kynna, ákaflega banvænir - og geta af þeim sökum valdið nokkrum óþægindum.

Einkamál

Fjárhagslega sjálfstæður karlmaður óskar eftir að kynnast lauslátri druslu með brókarsótt. Eða bara einhverri konu sem nennir að hittast.
Sv.s.a. merkt: „Drusla95837“

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: