Frétt — Enter — 15. 1. 2007
Dularfullur fiskdauði
Vésteinn átti í talsverðum fjárhagsörðugleikum undir það síðasta og drakk illa.

Sérþjálfaðir starfsmenn frá Hafrannsóknastofnun rannsaka nú dularfullan fiskdauða í Grundarfirði.

Tildrög málsins eru að í síðustu viku fannst eldisþorskurinn Vésteinn örendur í kví sinni og bentu verksummerki ótvírætt til að hann hafi verið myrtur.

Nú þegar hefur ein síld verið handtekin og færð í gæsluvarðhald, en hún er forsprakki erlends síldargengis sem talið er tengjast dauða eldisþorsksins ólánsama.

Vésteinn lætur eftir sig eiginkonu og 1.400 börn.

Stúlku

vantar til morgunverka hjá öldruðum tvíburabræðrum. Greitt eftir sérstöku samkomulagi. Afgr. vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: