Feðgarnir Ýmir og Loftur Sigurðarsynir, sem báðir þjást af alvarlegri, ættgengri siðblindu, hafa um árabil verið áberandi í íslensku viðskiptalífi. Þeir högnuðust vel á eiturlyfjaviðskiptum á síðasta áratug síðustu aldar og hafa síðan verslað mikið með bæði efnavopn og skammdrægar eldflaugar, einkum við ríki í Afríku og í Suður Ameríku.
Hafa þeir feðgar ákveðið að láta gott af sér leiða nú fyrir jólin og hafa því farið af stað með sölu á hálfsjálfvirkum rifflum og handsprengjum til götubarna í gömlu Sovétlýðveldunum.
Mun allur ágóði af átakinu renna til bandaríska tóbaksrisans Philip Morris.
Klæðskiptingar
Munið skiptimarkaðinn í Kolaportinu.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.