Hjónin Martha og Ingvald Köser urðu fyrir alvarlegu tískuslysi á leið sinni til vinnu í morgun.
Að sögn sjónarvotta féll Martha fyrir svartmunstruðum frottékjól, renndum í bakið á horni Vatnsstígs og Hverfisgötu og datt samstundis úr tísku. Ingvald fylgdi svo í kjölfarið þegar hann árangurslítið reyndi að koma eiginkonu sinni til hjálpar með því að klæða sig í stíl með svarbláu ullarbindi og olnbogabættum flauelsjakka.
Voru hjónin þegar í stað flutt í Sundhöll Reykjavíkur, þar sem þeim var gert að afklæðast.
Rasskinna
Erótíska raftímaritið Rasskinna er komið út! Fjöldi ljósmynda!
Tryggið ykkur eintak!
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.