Umhverfissamtök víðs vegar um heim hafa látið í ljós alvarlegar áhyggjur af sjóræningjaveiðum innan íslenskrar lögsögu, en sjóræningjar eru sem kunnugt er í bráðri útrýmingarhættu og því alfriðaðir.
Að sögn Marteins Marteinssonar, sérfræðings í vist- og atferlisfræði sjóræningja, hefur tegundin ekki fjölgað sér hér við land svo nokkru nemi undanfarna áratugi.
Við vitum ekki hvað veldur þessu, ef til vill hlýnandi loftslag eða ágangur mannsins á náttúrulegar uppeldisstöðvar sjóræningja - en það er alveg ljóst að allar veiðar úr sjóræningjastofninum gera bara illt verra, segir Marteinn.
Til að bregðast við vaxandi áhyggjum alþjóðasamfélagsins hyggst Landhelgisgæslan skera upp herör gegn sjóræningjaveiðum innan lögsögu Íslands, einkum veiðum með sprengiskutli og flotvörpu, sem þykja sérstaklega ógeðfelldar og ómannúðlegar.
Tapað fundið
Lítill sirkúsfíll fannst á mótum Snorrabrautar og Hverfisgötu að morgni sunnudagsins 15. október. Grár.
A.v.á.
Ég sé að fullháttvirtur forseti hins háa Alþingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurðarveisluna sem hann hélt á Völlunum að viðstöddu fámenni í gær.
„Forseti Alþingis harmar að heimsókn danska þingforsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin og leyfir sér að trúa því að það sé minnihlutasjónarmið að viðeigandi sé að sýna danska þingforsetanum óvirðingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóðþingsins og dönsku þjóðarinnar.“ — segir forseti.
Ég mótmæli herra forseti.
Þessi vanhugsaða og alls óvelkomna heimsókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjölmilljónapartíið þitt. Heiðursgesturinn flóttalegi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðanamyrka skugga á hátíðahöldin og eyðileggja þau gersamlega.
Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa útdönkuðu rasistapíu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þingforseta yfirhöfuð.
Það er nefnilega míkróminnihlutasjónarmið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauðklædda rasista og leiða til hásætis á hátíðarþingfundi á sjálfu Lögbergi. Og það að gera lítið úr gagnrýni á þetta skipulagsslys er ekkert annað ómerkilegt yfirklór og eftirámjálm.
Svo eiga menn bara að drullufrussfretast til að biðjast afsökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðlilegum viðbrögðum við þessum skammarlega undirlægju– og druslugunguhætti.
Góðar stundir.