Yfirgnæfandi meirihluti vingjarnlegra eldri kvenna eru samviskulausir drullusokkar.
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem gerð var á þúsundum íslenskra kvenna sem komnar eru af léttasta skeiði.
Andstætt því sem áður var talið mældist þessi hópur umtalsvert svikulli og ómerkilegri en aðrir þjóðfélagshópar - og því geðugri og brosmildari sem þær virtust á yfirborðinu því lúalegri og undirförulli reyndust þær í raun.
Þá kom í ljós að innan við eitt prósent eldri kvenna baka sjálfar þær pönnukökur sem þær bjóða gestum upp á - og engin þeirra velur persónulega gjafir handa barnabörnum sínum.
Keðjusagarmorðingjar
Nú þarf enginn að láta hátt eldsneytisverð trufla tómstundirnar. Vorum að fá nýja sendingu af rafknúnum keðjusögum í ýmsum stærðum og litum. -Byggsmiðjan
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.