Hjartaknúsarinn og ofurfyrirsetinn Gísli Bárðarson á afmæli í dag. Hann hefur unnið á ræstisviði Baggalúts í tæpt ár og óskar ritstjórn súkkulaðidrengnum sínum til hamingju með daginn og óskar honum góðs gengis í keppninni herra útlönd 2002 í næsta mánuði.
Einkamál
karlmaður á sjötugsaldri óskar ekki eftir að kynnast neinum. Allra síst með nánari kynni í huga. Þið getið bara fokkað ykkur. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.