Hinn þekkti köntrísöngvari og lagasmiður Wes Utterdale er hættur í hljómsveitinni Esperwood, sem hann stofnaði ásamt félaga sínum Jesper Gropeback Jr. Hann vinnur nú að fyrstu sólóplötu sinni sem ber vinnutitilinn Gengis Kahn in Texas.
Aðspurður sagðist Wes vera orðinn langþreyttur á hljómsveitarbröltinu og kvaðst hann vilja einbeita sér að eigin sköpun í framtíðinni. „Maður getur náttúrulega ekki staðið í þessu endalaust og mér fannst komin tími til að breyta til - maður er náttúrulega búinn að lifa helvíti hratt og svona... prófa allt og svona þúveist. Svo lenti ég líka í erfiðum skilnaði og svona við Esther [Ibenholt, fyrirsætu - innsk. blm.] sem ég þarf bara að tjá mig um á mínum eigin forsendum. Alltsvo á þessari nýju plötu sko“, sagði þessi geðþekki Íslandsvinur í símaviðtali við blaðamann Baggalúts.
Til sölu
Tveir fallegir verðlaunagripir úr lituðu gleri og steini. Lítið notaðir. Ritstj. Baggalúts.
Ég sé að fullháttvirtur forseti hins háa Alþingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurðarveisluna sem hann hélt á Völlunum að viðstöddu fámenni í gær.
„Forseti Alþingis harmar að heimsókn danska þingforsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin og leyfir sér að trúa því að það sé minnihlutasjónarmið að viðeigandi sé að sýna danska þingforsetanum óvirðingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóðþingsins og dönsku þjóðarinnar.“ — segir forseti.
Ég mótmæli herra forseti.
Þessi vanhugsaða og alls óvelkomna heimsókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjölmilljónapartíið þitt. Heiðursgesturinn flóttalegi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðanamyrka skugga á hátíðahöldin og eyðileggja þau gersamlega.
Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa útdönkuðu rasistapíu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þingforseta yfirhöfuð.
Það er nefnilega míkróminnihlutasjónarmið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauðklædda rasista og leiða til hásætis á hátíðarþingfundi á sjálfu Lögbergi. Og það að gera lítið úr gagnrýni á þetta skipulagsslys er ekkert annað ómerkilegt yfirklór og eftirámjálm.
Svo eiga menn bara að drullufrussfretast til að biðjast afsökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðlilegum viðbrögðum við þessum skammarlega undirlægju– og druslugunguhætti.
Góðar stundir.