Frétt — Enter — 12. 2. 2006
Dagur sigrar í prófkjöri Samfylkingarinnar
Dagur þykir boða nýja tíma í framvarðasveit Samfylkingar, en hingað til hefur flokkurinn nær eingöngu teflt fram rökuðum öpum.

Dagur Bergþóru- og Eggertsson mun leiða lista Samfylkingar í komandi borgarstjórnarkosningum, en hann lenti í 1. sæti í prófkjöri flokksins um helgina.

Fulltrúar Reykjavíkurlista, óháðra og Vinstri grænna voru sigursælir í prófkjörinu, auk þess sem nokkrir nýliðar lentu í efstu sætum.

Fulltrúar Samfylkingar báru hins vegar heldur skarðan hlut frá borði og komust fæstir á blað.

Skipti

Lítið notaður jeppi ellegar sendibíll óskast í skiptum fyrir vel með farið kjúklingabú í Mossfellsbæ.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: