Frétt — N?mi Fannsker — 31. 10. 2005
Gefur kost á sér í 1. sæti
Mundi ásamt kosningastjóra sínum, Leó.

Sigmundur Sigmundsson, Mundi, gefur kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer á laugardag. Sigmundur kveðst gefa kost á sér vegna fjölda áskorana, en stuðningsmenn hans eru einkum ungir sjálfstæðismenn - aðallega svokallaðir „skeitarar“, en sá hópur hefur að sögn Sigmundar algerlega gleymst í borginni hingað til.

„Já, það vantar sárlega úrræði fyrir þennan hóp. Ég ætla, sem borgarstjóri, að bæta aðgengi skeitara verulega, en því miður hefur þessum hópi verið lítið sinnt. Af einhverjum ástæðum hafa svo hvorki Gísli litli né Villi sýnt málefnum skeitara áhuga. Því miður, og það er eiginlega til háborinnar skammar að horfa upp á það, í einu ríkasta samfélagi veraldar, hvernig þessi þjóðfélagshópur hefur orðið útundan í góðærinu “, sagði Sigmundur í samtali við Baggalút.

Meðal helstu baráttumála Sigmundar eru striklausar gangstéttir, tröppulaus Reykjavík árið 2009 auk þess sem hann hyggst beita sér fyrir því að reistur verði svokallaður „skeitrampur “ yfir sundið milli Reykjavíkur og Akraness.

Kassavanur

balroggsungi fæst gefins á gott heimili. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: