Frétt — Spesi — 28. 10. 2005
Tölur gripnar á ferðalagi
Kennitölurnar höfðu dulbúið sig sem nafnnúmer

Lög­reglan á Sel­fossi hafði í gær­kvöldi af­skipti af tveimur tölum sem voru á putta­ferða­lagi í gegnum bæinn. Þegar þær voru færðar til yfir­heyrslu og taldar kom í ljós að þær inni­héldu hvor um sig tíu tölur. Var þá haft sam­band við Hag­stofu Ís­lands sem stað­festi að þar voru á ferð­inni kenni­tölur sem sloppið höfðu þaðan fyrr í vikunni.

Lög­reglu­embætti víðs­vegar um landið hafa undan­farið haldið uppi ströngu eftir­liti með tölum á þjóð­vegum lands­ins. Er þetta liður í að­gerðum stjórn­valda til að sporna við vanda­málum sam­fara sí­auknu kenni­tölu­flakki.

Kona óskast

á skuttogara. Þarf að vera þolgóð og útsjónarsöm.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: