Frétt — Myglar — 4. 5. 2005
Gervihnattamyndir sanna að boltinn fór inn
Eins og greinilega sést á þessari mynd var boltinn kominn vel yfir marklínuna.

Gervihnattamyndir teknar af Anfield-hverfinu í Liverpool í gærkvöldi sanna með óyggjandi hætti að markið sem Liverpool-liðið skoraði gegn Chelsea í leik liðanna um sæti í úrslitaleik meistaradeildarinnar var fullkomlega löglegt.
Þetta staðfestir fullyrðingar markaskorara Liverpool, Luis Garcia, um að knötturinn hafi farið inn í markið. Raunar hefði verið óþarfi að véfenga frásögn hans, enda þar á ferðinni strangheiðarlegur og réttsýnn knattspyrnumaður.

Dvergar!

Skemmtilegu smábarnafötin eru komin aftur. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: