Frétt — Spesi — 14. 4. 2005
Fornafnafíkill kærir vegna mismununar
Brjánn kveðst hafa fengið talsvert í hann út af því

Brjánn Valdemars­son hefur kært Ágústu Krantz starfs­manna­stjóra Vífil­fells fyrir að hafa mis­munað sér þegar hún neitaði honum um starf sem felst í að annast áfyllingar á flöskum og að tæma flutninga­gáma. Telur Brjánn Ágústu hafa neitað sér um starfið vegna fötl­unar hans, en hann er haldinn fornafna­losta.

„Þetta er rosa­lega fúlt, mig langaði svo mikið í það,“ sagði Brjánn í spjalli við Baggalút. „Ég er mjög góður í að gera það, ég meina setja í hana, og líka góður í að gera hitt, fá úr honum sko.“

„Mér finnst að ég hefði alveg átt að fá það og mér finnst að hún hefði átt að leyfa það,“ sagði Brjánn von­svikinn að lokum.

Aðspurð sagðist Ágústa ekki hafa neinn áhuga á að ráða „svona dóna­pésa“ í vinnu.

Hurðalaust helvíti

til sölu í rólegu hverfi í Reykjavík. Tilboð óskast.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: