„Já, ég er alveg hættur þessu rugli í dag,“ segir Finnbogi Guðmarsson, fyrrum unglingsstúlknapervert, sem hljómlistamaðurinn Megas gerði ódauðlegan í lagi sínu Krókódílamaðurinn. „Núna spila ég bara bridds á kvöldin og svona.“
„Ég varð að hætta þessu smástelpurugli,“ segir Finnbogi. „Þetta tók svo á taugarnar, maður var bara kominn með magasár af þessu.“
Finnbogi segir það hafa verið sérstaklega erfitt þegar bjargvætturinn Laufey hafi komið að sér við iðju sína. „Þá þurfti maður aldeilis að leggja á flótta,“ rifjar hann upp. „Maður hljóp heim og varð alveg lamaður af ótta!“
Nú kaupa allir sér hlutabréf
Vorum að opna aftur eftir breytingar. Gott úrval á frábæru verði.
Kauphöll Íslands – við græðum á þér
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.