Frétt — Enter — 4. 2. 2005
Lýst er eftir manni á fimmtugsaldri
Þeir sem veita upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins fá út að borða fyrir tvo á McDonalds.

George Bush yngri, leiðtogi hins viti borna heims, hefur beðið Baggalút að koma á framfæri tilkynningu frá bandarískum yfirvöldum:

„Lýst er eftir manni á fimmtugsaldri, dökkum yfirlitum. Hann er með hvítt, frekar púkalegt viskustykki vafið um höfuðið og mikið og ljótt, svart skegg sem dálítið er tekið að grána. Hann er klæddur í grænan hermannajakka að sið samviskulausra hryðjuverkamanna og hvítan hlýrabol með áletruninni Uzi does it. Hann gegnir nafninu Bin.“

Eru allir þeir sem hafa orðið mannsins varir beðnir um að láta Bob hjá Varnaliðinu á Keflavíkurflugvelli vita, eða hringja beint í Bush í síma 00-1-202-IHATEBIN.

Keðjusagarmorðingjar

Nú þarf enginn að láta hátt eldsneytisverð trufla tómstundirnar. Vorum að fá nýja sendingu af rafknúnum keðjusögum í ýmsum stærðum og litum. -Byggsmiðjan

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: