Frétt — Spesi — 31. 1. 2005
Neyðarástand á landinu öllu!
Guðni Ágústsson verður starfandi forsætisráðherra fram á laugardag.

Lýst hefur verið yfir tímabundnu neyðarástandi á landinu. Er fólki ráðlagt að halda sig í loftvarnarbyrgjum sínum fram á næstkomandi laugardag, að öðrum kosti sé ekki hægt að tryggja öryggi þess.

"Já, ástandið er komið úr appelsínugulu yfir í rautt," sagði Pétur Petruson forstöðumaður Almannavarna. "Það var slæmt fyrir, versnaði enn kringum áramótin og nú er það orðið mjög hættulegt."

Þá er fólki ráðlagt að taka engin dýr með sér í byrgin og hleypa alls ekki neinum kindum inn ef þær knýja dyra, hversu mikinn fagurgala sem þær hafa í frammi.

"Við erum náttúrulega aldrei spurðir álits þegar kemur að stjórnskipulagi," sagði Pétur að lokum. "Bara eins gott að kjarnorkuvopnabúr landsins er vel falið..."

Greiðendur fasteignagjalda!

Munið að þótt þið eigið í raun minna en ekkert í húsunum ykkar og bankinn gæti hirt þau af ykkur hvenær sem er, þá verðið þið samt sem áður að borga fasteignagjöldin. Svona erum við ógeðslega sniðug!
Sveitarfélögin

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: