Mennirnir á myndinni eru sennilega ættaðir úr Húnavatnssýslum - þeir gætu verið af Örlygsætt eða Blávíkurætt en þó er vel hugsanlegt að þeir séu vestan af Snæfellsnesi og væru þá líklega af Flókaætt eða Merar-Gudduætt.
Þeir sem þekkja mennina eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við ritstjórn Baggalúts í tölvupósti (ritstjorn@baggalutur.is) merktum 'Húnvetningar 41987'.
S.O.S
Er tilbúinn til að greiða vel fyrir afnot af vatnssalerni, einu sinni í viku. Valdi spíri.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.