Eftir tíu ára þrotlausar rannsóknir, tugþúsundir ljósmynda, teikninga og myndbandsupptakna hefur Róbert Esakíel Jónsson, að höfðu samráði við fjölskyldu sína og vini, komist að þeirri niðurstöðu að vinstri vangi sinn henti betur við fyrirsætustörf og ljósmyndatökur.
„Það er rétt, ég er 28,4% fótógenískari vinstra megin,“ segir Róbert og er dauðfeginn að niðurstaða liggur loks fyrir. Næstu skref verða að eyða skipulega öllu myndefni sem til er a af hægri vanganum auk þess sem Róbert mun fljótlega leggjast í athuganir á því hvort hann myndist betur með eða án gleraugna.
Til sölu
Ljóst man. Á sama stað einnig töluvert af snæri.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.