Frétt — Enter — 9. 6. 2004
Aftur byrjað að leka hjá Vigfúsi
Vonbrigðin leyndu sér ekki í svip Vigfúsar.

Það er aftur byrjað að leka í þakíbúð Vigfúsar Rósarssonar í Hafnarfirðinum. Þetta er niðurstaða grenndarnefndar sem rannsakað hefur gaumgæfilega hús Vigfúsar frá áramótum með styrk frá þakeigindasjóði og samstarfshópi regnvenslagreiningardeildar ríkisins.

Vigfús var að vonum bæði hissa og sár, en hann hefur nú fjórum sinnum skipt um veggfóður á loftinu samkvæmt leiðbeinandi tillögum frá ráðgjafafulltrúa þakskeggjanefndar EFTA og skrifstofu umboðsmanns vætu á Íslandi.

Tapað fundið

Lítill sirkúsfíll fannst á mótum Snorrabrautar og Hverfisgötu að morgni sunnudagsins 15. október. Grár.
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: