Frétt — Enter — 12. 12. 2001
Jólalag Baggalúts 2001
Jólalagið er afar skemmtilegt

Ritstjórn vill vekja athygli á nýju danslagi sem gefið erút sérstaklega í tilefni af næstkomandi jólahátíð.

Um er að ræða texta Myglars við gamalt bandarískt/jiddískt þjóðlag. Lagið er sungið af ofurtenórnum Tony Ztarblaster úr þýsku hljómsveitinni Thundervolt, en hann bregður sér hér í gervi sjálfs jólasveinsins - undirleik annast nokkrir hressir piltar úr eðalrokksveitinni Kalk - þeir töpuðu veðmáli.

Lagið má nálgast hér.

Þjóðarbú

Vorum að fá í einkasölu, fallegt þjóðarbú. Á besta stað, miðsvæðis á Atlantshafi. Búið þarfnast töluverðs viðhalds og fæst gegn yfirtöku skulda. Eigna- og hárþvottamiðstöð Snúlla og Dúlla.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: