Frétt — Númi Fannsker — 2. 6. 2004
Nýr organisti í Hallgrímskirkju
DJ Requiem við nýja orgelið, sem er mun nettara en það gamla

Hinn kunni plötusnúður og dansari, DJ Requiem, tók í morgun við starfi organista í Hallgrímskirkju. Að sögn DJ Requiems hyggst hann færa kirkjutónlist nær samtímanum, m.a. með rafvæðingu orgelsins, sem hingað til hefur verið fótstigið pípuorgel.

Hið nýja orgel er af gerðinni IBM-ts4000 og mun nýi organistinn leika jöfnum höndum af hljómdiskum og mp3 hljóðskrám úr einkasafni sínu.

Vantar þig heimilistæki?

Erum að taka við pöntnum fyrir innflutning ársins 2015. Umsóknareyðublöð í þríriti fást afhennt gegn skriflegri beiðni (með hefðbundnum 3 mánaða fyrirvara).

Neyslu- og innflutningsstýringarráð ríkisins

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: