Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 18. 5. 2004
Fjölmiðlafrumvarpi stolið
Þessi mynd náðist af þjófnum á einni af öryggismyndavélum Alþingis

Fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnarinnar var rænt á göngum alþingishússins laust eftir hádegi í dag. Þrekinn karlmaður á miðjum aldri réðist að forsætisráðherra, hrifsaði til sín frumvarpið og stormaði út úr byggingunni.

Að sögn vitna var manninum heitt í hamsi og þótti hann einkar snar í snúningum miðað við líkamsþyngd.

Lögreglan lýsir eftir feitum, skeggjuðum og að öllum líkindum sveittum karlmanni á aldrinum 40 til 60 ára í jakkafötum með talsvert af pappír meðferðis.

Riklingur

til sölu með sanngjörnu verði. A. v. á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: