Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 22. 4. 2004
Hagnaður á rekstri internetfyrirtækis
Ursula Svetlanskaia, framkvæmdastjóri, er að vonum ánægð með árangurinn.

Búlgarska netverslunin BigMama.com tilkynnti í kvöld að 111 milljóna rúbla hagnaður hefði verið á rekstinum á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem internetfyrirtæki skilar hagnaði.

Verslunin, sem selur undirfatnað fyrir offitusjúkar konur, hefur verið starfrækt í alls 5 ár og hefur á sínum vegum 2 starfsmenn.

Nauðungaruppboð

Hreindýrasleði. Átta hreindýr. Rauður galli (XXXL) og nýuppgerð stúdíóíbúð á Norðurpólnum (áhvíl. 87 millj.).

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: