


Æi. Vesalings litli Jenis. Ætla nú stóru, vondu íslensku lesbíurnar að koma og taka hann? Taka litla strákinn og draga hann með sér í stóra ljóta lesbíugrenið sitt í Esjunni? Og sjóða hann í stóra lesbíupottinum sínum? Og búa til úr honum risastóra færeyska hálfbjánaloku með sérlagaðri lesbíusósu?
Stráktuskan.
Hér eru nokkur húsráð gegn lesbíum sem hann gæti nýtt sér:
1. Hvítlaukur.
2. Aromat-krydd.
3. Vígt vatn (eða óvígt - eftir smekk)
4. Biflían.
5. Natron.

Ekki vill með Jóku Jenis
(Jesú vegna) snæða.
Ekki vill hann einn með penis
efnahagsmál ræða.
Náðað sjá í næði
nýja mynd í bíó.
Kreisí herta hausa
hamast alla saman.
Fleygar flugu línur
flæddi blóð úr stóði.
Að endi slöppum slepptum
Sly, þið voruð æði.
Hver hefði trúað því að djúpsteikt pylsubrauð með hnetusmjöri og hlynsýrópi færu svona vel með snikkerssmúðí? Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Újebeibí!






Baggalútur er eini skemmtistaður landsins sem leyfir reykingar, apahald og nektardans. Skrifstofan er opin alla miðvikudaga frá kl. 8.30–13.45.
Vinsamlegast hafið samband við ritstjorn@baggalutur.is ef þið viljið kaupa hlutabréf, kvarta – ellegar tilkynna um lífsmark á öðrum lífstjörnum.