Frétt — Kaktuz — 5. 2. 2004
Giftist bíl fyrst kvenna
Parið ætlar að eyða hveitibrauðsdögunum á kvartmílubrautinni við Hafnarfjörð

Elínborg Guðmundsdóttir gekk um helgina að eiga sinn heittelskaða. Ekki væri það í frásögur færandi nema vegna þess að maki hennar er bifreið af gerðinni Toyota og þurfti því sérstaka undanþágu biskups til að gefa þau saman.

'Hann er sá eini sem ég hef nokkurntímann haft áhuga á, svo ræð ég algerlega ferðinni, ekki geta alllar konur státað af því. Og ekki skemmir útlitið fyrir, hann er alveg eins og ég vil hafa hann, enda valdi ég litinn sjálf.' sagði Elínborg áður en að þau skötuhjúin þeystu af stað í brúðkaupsferðina.

Þófabrekán

Eigum fyrirliggjandi fáein úrvals þófabrekán. Ýmsir litir. Ýmsar stærðir.

Brekánbúðin.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: