Frétt — Spesi — 31. 10. 2003
Blönduðu ógeðsdrykk
Vinirnir bjuggust við að skemmta sér vel um helgina

Vinirnir Dagmar, Grétar, Steinar og Arnar tóku sig til í morgun og blönduðu ógeðsdrykk fyrir helgina, en þau eru miklir aðdáendur þáttanna 70 mínútur á PoppTíVí, þar sem þáttastjórnendur blanda jafnan miður geðfellda drykki í hverjum þætti.

"Já, 70 mínútur eru alveg æði," sögðu krakkarnir einum rómi í viðtali við Baggalút. "Þetta er örugglega alveg ógeðslegur drykkur. Allavega er lyktin nógu vond!"

Vinirnir segjast ætla að bjóða öllum sem þeir þekkja í veislu um helgina og láta gestina bragða á drykknum, sem þau segja vera í sterkara lagi, en hann inniheldur meðal annars þvottaefni, rafgeymasýru, rottueitur og arsenik.

Kona óskast

hið fyrsta til að deila með þrifalegum karlmanni á fertugsaldri vel einangruðu neðanjarðarbyrgi meðan yfirvofandi heimsendir gengur yfir. Má ekki reykja.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: