Hinn kunni raðmorðingi Trond Nilsen, eða slátrarinn frá Bergen, heimsótti Seyðisfjörð á dögunum og var vel fagnað af bæjarbúum. Trond myrti sem kunnugt er 16 stöðumælaverði, 5 skattrannsóknarmenn, 4 lögfræðinga og fáeina leikara snemma á áttunda áratugnum.
Trond fékk afhentan fána bæjarins við komuna auk þess sem karlakórinn Rjúpa flutti nokkur lög eftir stutt ávarp bæjarstjóra.
Til sölu
Til sölu mikið magn ónotaðra náttúrupassa.
a.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.