Frétt — Spesi — 16. 10. 2003
Englendingar og Tyrkir í hár saman
Borað eða potað - þar liggur efinn

Eldfimt ástand ríkir nú milli stjórnvalda Englands og Tyrklands í kjölfar þess að í brýnu sló milli leikmanna í knattspyrnulandsleik milli þjóðanna um síðustu helgi. Gerðist það í kjölfar þess að Alpay, leikmaður Tyrklands, potaði í andlit enska landsliðsmannsins David Beckhams.

"Ég var bara að athuga hvort hann væri örugglega ekta," sagði Alpay, en hann er mikill aðdáandi ofurstjörnunnar. "Hann er ótrúlega sætur, meir að segja í eigin persónu."

Beckham brást hinn versti við, en hann heldur því fram að Alpay hafi reynt að bora í nefið á sér. Segir hann að slíkt framferði sé alger óþarfi, enda snýti Victoria honum alltaf fyrir leik.

Sniffarar

Ný sending af öllum oktönum!

Skeljungur

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: