Una Unndórsdóttir, sjúkraliði og margfaldur Íslandsmeistari í krumlu kvenna, kolféll á lyfjaprófi sem tekið var við lok Íslandsmeistaramótsins í Perlunni um síðustu helgi. Mældist í blóði hennar talsvert mera magn testósteróns en í meðalgórillukarli.
Að sögn talsmanns Unu er hún saklaus af lyfjaneyslu en hann telur líklegt að óprúttnir hatursmenn og keppinautar Unu hafi skipt á sýni hennar og sýni úr nautinu Guttormi.
Átt þú erfitt með svefn?
Nýja SigurRósar platan er væntanleg í verzlanir okkar.
Hólavallaapótek.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.