Frétt — Spesi — 29. 9. 2003
Tók hurðina af bílnum vegna hita
Faðir Konráðs ætlar að hjálpa honum að fjarlægja farþegahurðirnar líka

Konráð Vilmundarson áhugaleigubílstjóri hefur ekki farið varhluta af veðurblíðunni í sumar frekar en aðrir landsmenn.

Kveðst hann oft hafa verið "alveg að drepast úr hita" þegar hann ók um í sumar, jafnvel þótt loftræstingin væri á fullu og allar rúður niðri. Til að bregðast við þessu brá Konráð á það ráð að fjarlægja bílstjórahurðina af bílnum sínum.

Aðspurður að því hvort hann teldi ekki að honum yrði kalt í vetur sagði Konráð, "neinei, það var jú til að koma í veg fyrir slíkt sem ég setti steinolíumiðstöðina í bílinn síðasta vetur."

Til sölu

Rauður kafbátur. 20 manna. Ekinn 18.000 sjómílur. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: