Nokkuð hefur borið á því að illvíg gengi fari með ofbeldi um höfuðstaðinn og nýti sér ófærðina til að klekkja á samborgurum sínum. Eru þetta stigamenn og ribbaldar á aldrinum 6-12 ára, gráir fyrir járnum og fara þeir um á hraðskreiðum STIGA-sleðum.
Það er neyðarástand í borginni," sagði talsmaður borgarinnar, "...ástandið hefur aldrei verið verra en nú, snjóboltar þjóta um allt og persónulega óttast ég um líf mitt á stundum."
Fólk er beðið að gæta sín og vera ekki á ferli að nauðsynjalausu fyrr en eftir að útivistarbann barna tekur gildi um 20:00.
Hringborð
fæst gefins. Vel með farið en nokkuð plássfrekt. Hentar vel stóru og meðalstórum hópum riddara.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.