Færeyingar skutu í gær upp njósnahnetti sem ætlað er að fylgjast með ferðum kringum nýuppgötvaðar olíulindir þeirra. Að sögn talsmanns 'Geimferjarans' sem sá um geimskotið er hnötturinn útbúinn langdrægum eldflaugum sem munu "...skjóta og skjóta á alla sem vilja handsama bensínið okkar"
Utanríkisríkisráðuneytið sendi frá sér harðort bréf til lögmanns Færeyinga og hótaði því að ef "...þessi ömurlegi ofvaxni loftbelgur" yrði ekki fjarlægður fyrir kvöldið myndu Íslendingar senda VARÐSKIP á staðinn.
Hreinlegur eldri
kvenmaður óskast á fámennt heimili. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.