Jón Sigurðsson - óskabarn Íslands, sómi þess, sverð og skjöldur - hefur verið skipaður seðlabankastjóri.
Valið stóð á milli Jóns og Páls Péturssonar og átti upphaflega að ráða Pál sökum þess að hann er enn í tölu lifenda. Þeim rökum var þó hafnað enda talið hugsanlegt að það stangaðist á við jafnréttislög að mismuna umsækjendum á grundvelli þess hvort þeir eru á lífi eður ei.
Jón hlaut því starfið sökum yfirburðahæfileika, mikillar reynslu og góðra meðmæla.
Icesave
Tek að mér að leysa Icesavedeilur af öllum stærðum og gerðum. Fullum trúnaði heitið. Sanngjörn laun. Einar.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.