Frétt — Enter — 26. 11. 2001
Rasmussen reynist vera geimvera
Geimvera?

Anders Fogh Rasmussen formaður Venstre og verðandi forsætisráðherra Danmerkur, gekk í dag á fund drottningar og játaði fyrir henni að hann væri í raun geimvera. Að sögn starfsmanna hallarinnar brást drottningin ekki illa við þessum tíðindum, en líklegt er þó að hún afturkalli umboð Rasmussen til stjórnarmyndunar.

"Já, það er ekki um að villast," sagði Helge Ulveus vísindamaður hjá dönsku nýalsamtökunum. "Í blóðprufu sem við tókum úr Anders var magn eter-plasma, tjahh - stjarnfræðilegt. Hann er ekta."

Líklegt er að Rasmussen verði aflífaður eftir að rannsóknum á honum lýkur og hann hafður til sýnis í danska Náttúrugripasafninu í Gladsaxe.

Ræningjar

eigum mikið af nálum fyrirliggjandi, prjónastofan Snurða.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: