Í viðtali við Brynjúlf Kvaran, líffræðing, í nýjasta tímariti félags fuglafræðinga koma fram grófar ásakanir um misnotkun skáldsins og tónlistarmannsins Megasar á kanabisefnum. Þar segir Brynjúlfur að skáldið hafi "reykt hass í partíi í Hveragerði árið 1982". Hér er um afar alvarlegar ásakanir að ræða, þar sem Megas er margverðlaunaður listamaður og fyrirmynd íslenskra ungmenna.
Talsmaður Megasar vísar þessum ásökunum á bug og segir að i umræddu partíi í Hveragerði hafi Megas verið spurður hvað hann væri að reykja, hann hafi ekki heyrt spurninguna, þar sem hann var að kveikja sér í vindli og svarað: "Ha? Svakalegur hávaði er hérna." Brynjúlfur svaraði Baggalúti hinsvegar því að Megas hafi sagt: "Hass! Vaka lengur, hávaði er hérna." Ummæli þessi hafi greinilega verið látin falla í hassvímu.
Málið er í rannsókn.
Til sölu
Vel með farinn fagurrauður Hummer jeppi. Lítið ekinn. Laus strax.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.