Davíð Oddsson var í morgun valinn starfsmaður júnímánaðar í forsætisráðuneytinu. Er þetta 114. mánuðurinn í röð sem Davíð hreppir þessa eftirsóttu nafnbót.
Aðspurður sagði Davíð viðurkenninguna koma sér mjög á óvart þó vissulega hefði hann vonast til að hreppa hana. Í viðurkenningarskyni fékk Davíð heildarútgáfu alfræðiorðabókarinnar Britannica, árskort í líkamsræktarstöðina Púlver og 350.000 kr. vöruúttekt í verslun ÁTVR við Eiðstorg.
Auðtrúa asnar athugið!
Myntkörfulánin sívinsælu eru komin aftur!
Bankarnir
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.