Björgunarsveitin Aðalsteinn á Ingjaldssandi var óstarfhæf alla hvítasunnuhelgina vegna harðrar áfengisneyslu sveitarinnar. Samkvæmt heimildum Baggalúts var sveitin alldrukkin frá föstudegi til mánudags - mest þó á sunnudagskvöldi og aðfaranótt mánudags.
Aðalsteinn Richter, stofnandi, formaður og eini meðlimur sveitarinnar sagði málið vera í athugun og hét því að sem formaður kæmist hann "...til botns í þessu leiðindamáli".Hann bjóst þó ekki við brottvísunum úr sveitinni vegna málsins.
Læknadóp
Magnyl! Strepsils! Paracetamol! Benylin! B-Vítamín! Vics! Bonjela! Viox! Acenton! Íbúfen!
Boggi dálkur - Hlemmi
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.