Þórólfur Árnason borgarstjóri hefur komist að þeirri niðurstöðu að stórfellt tap á höfuðstól Leikfélags Reykjavíkur á síðustu árum á sér eðlilegar skýringar. Kemur þetta í kjölfar fundar sem hann átti með leikhússtjóra og stjórn leikfélagsins í dag.
"Stjórnarmenn opnuðu augu mín í dag," sagði Þórólfur í viðtali við Baggalút. "Þegar stjórnin sýndi mér mynd af viðskiptalíkani sínu varð mér ljóst hvers kyns snilld er hér á ferðinni. Hrein og klár list."
Að sögn stjórnarmanna var viðskiptalíkanið hannað af viðurkenndum slóvöskum dramatúrg og líta þeir á það sem mikið listaverk. Sýnir það fram á nauðsyn þess að aðlaga höfuðstólstölurnar að lögun hússins sem hýsir starfsemina.
Varúlfur
Einhleypur varúlfur, reyklaus, óskar eftir að leigja gluggalaust herbergi með aðgengi að salerni, helst í kjallara. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.