Skáldverkið Alvara lífsins - Ársreikningur 2002, eftir Árna Vigfússon og Kristján Kristjánsson hlaut á dögunum bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins. Í umsögn dómnefndar segir:
"Í verkinu kemur fram fádæma hugmyndaauðgi þar sem höfundar hreinlega fara á kostum í útópískum fantasíustíl sínum og draga hvergi af. Verkið rís hæst í kaflanum Eigið fé, en þar tekst höfundum að skapa magnaðan undraheim sem fangar lesandann".
Þegar hefur verið samið um þýðingu verksins og útgáfu í öllum löndum Evrópusambandsins.
Töfralæknir
óskast í sérverkefni. Þarf að geta hafið störf nú þegar. Afgreiðsla vísar á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.