Sigþór Hannesarson, pípulagningameistari, var nú rétt í þessu að finna linsurnar sínar, en þær höfðu verið týndar síðan klukkan ellefu í morgun.
Sigþór vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem aðstoðuðu hann við leitina og þá sérstaklega Vilmundi Bjarnasyni, sem með ótrúlegri þolinmæði, nákvæmni og kaldri rökhyggju fann linsurnar að lokum ofan í kaffibolla Sigþórs.
Linsurnar verða framvegis geymdar í eldföstu öryggishólfi á skrifstofu Sigþórs, ef ske kynni að hann týndi nýju gleraugunum sínum.
Tenór óskast strax
í meðalstórt hugbúnaðarfyrirtæki góð Excelkunnátta nauðsynleg.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.