Þau stórtíðindu urðu á nýafstaðinni norrænni ráðstefnu um nýjungar í tónlist að Dr Árni H. Ingólfz, tónvísindamaður, tilkynnti um uppgötvun sína á nýjum hljómi. "Ég var nú bara að spila Gleðibankann á sembalið heima mér til upplyftingar þegar mér varð skyndilega á í messunni - í miðju öðru erindi (aths. ritstj "Hertu upp huga þinn...") og þarna blasti hann við X-dúr".
Að sögn Árna er um afar hreinan og þýðan hljóm að ræða sem á sér hvorki moll né sjöund. Hlaut hljómurinn mjög góðar viðtökur á ráðstefnunni og aldrei að vita nema hann gæti reynst leynivopn Íslendinga í Eurovision keppninni að ári.
Fakír
óskar eftir að komast í kynni við reyklausa, geðprúða konu á fertugsaldri. þarf að hafa reynslu af nálastungum og nokkuð sterkar taugar.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.