Frétt — Spesi — 30. 5. 2003
Neitar að fara í peysu
Fannar hefur sett upp sólgleraugu til að vera enn meira kúl

Fannar Hannesson (35) ætlar ekki að fara í peysu, þó svo að sólin hafi lítið látið sjá sig, aðeins sé farið að blása og hitastig farið að lækka. Hefur hann nú haldið til í garðinum heima hjá sér síðan í morgun í "svakalegum sumarfíling".

"Mér er ekkert svo kalt," sagði Fannar í spjalli við Baggalút. "Það er líka ekki eins kúl að vera á peysunni."

Móðir Fannars hefur þrábeðið hann að koma inn og klæða sig betur, en Fannar ætlar ekki að gefa neitt eftir og hyggst hann vera á bolnum úti í garði til tíu í kvöld, hvað sem hún segir.

Tapað fundið

Hvítt og móbrúnt lamadýr týndist einhversstaðar milli Hveragerðis og Eyrarbakka um helgina. Svarar nafninu Hermann. Fundarlaun. Skilvís finnandi hafi samband við afgreiðslu Baggalúts.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: