Frétt — Númi Fannsker — 28. 5. 2003
Ræstingakona kemst til æðstu metorða í Búnaðarbanka
Ragnheiður tók sig vel út í einkennisbúningi viðskiptastjóra

Ragnheiður Heiðarsdóttir, fyrrverandi ræstingakona, var fyrir tilviljun skipuð í stöðu viðskiptastjóra Búnaðarbankans fyrir skömmu. Svo virðist sem Ragnheiður hafi verið tekin í misgripum fyrir Elmar Elvarsson, framkvæmdastjóra gjaldeyrisviðskipta og hækkuð í tign.

Á þeim þremur vikum sem hún hefur setið á stóli viðskiptastjóra hefur hún m.a. keypt mikið hlutafé í ýmsum fyrirtækjum, t.d. Marhnútaeldisstöðinni hf, Efnalauginni Pésa, Flugfélagi Snæfells- og Hnappadalssýslu og Refapylsum hf. Að auki tókst henni að sameina Búnaðarbanka og Kaupþing, selja allt húsnæði bankans og láta koma fyrir sólbaðsaðstöðu á öllum kaffistofum.

Ragnheiður var leyst frá störfum í morgun þegar upp komst að hún hafði ítrekað hringt í systur sína í Lúxembúrg úr síma bankans.

Keðjusagarmorðingjar

Nú þarf enginn að láta hátt eldsneytisverð trufla tómstundirnar. Vorum að fá nýja sendingu af rafknúnum keðjusögum í ýmsum stærðum og litum. -Byggsmiðjan

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: