Frétt — Myglar — 22. 5. 2003
Nýr landsliðsþjálfari fundinn?
Udolf segist m.a. hafa starfað að ólympíumálum og ku vera mjög harður í horn að taka.

Eggert Magnússon, formaður KSÍ, á í samningaviðræðum við erlendan þjálfara um að taka að sér þjálfun karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu. Sá heitir Udolf Hussenstein og hefur nýlega fengið austurrískan ríkisborgararétt, en hann var áður búsettur í miðausturlöndum.
"Þessi náungi skaut upp kollinum í Evrópu nú nýlega. Hann hefur að vísu ekki þjálfað mikið en er með frábær meðmæli," sagði Eggert í samtali við Baggalút.

Ukuleleleikarar

Tek að mér stillingar á G, A og E - strengjum. Fullum trúnaði heitið.
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: