Frétt — Myglar — 24. 4. 2003
Hafnfirðingur lýsir sig landsstjóra Írak
Víglundur hefur alltaf verið framtakssamur maður

Rúmlega fertugur Hafnfirðingur, Víglundur Orrason, hefur lýst sjálfan sig landsstjóra Írak og skipað mág sinn borgarstjóra í Bagdad. Í sameiningu hafa þeir síðan opnað nýtt sendiráð Íraks í Hafnarfirði og er það staðsett í kjallaraíbúð Víglundar í Hvaleyrarholtinu.
Þeir félagar eru nú að safna liði til að ráðast á herstöð Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli.

GEFINS!

700 lítra tunna af þvottavélaló fæst gefins!
Á.k.y.h.s.p.m.
Einar.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: