Áður óþekkt málverk fannst á heimili Jóns Sigurðssonar, byltingarhetju, í Kaupmannahöfn á dögunum. Myndin er talin sjálfsmynd eftir eiginkonu Jóns, Ingibjörgu Einarsdóttur. Hingað til vissu menn ekki að þau hjón hefðu hneigst til málaralistar, en þó liggja eftir Jón fáein vefnaðarverk og keramiköskubakki.
Myndin - Inga dragkong - er greinilega af Ingibjörgu, en hún var þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir í kæðaburði og framkomu og hefur gjarnan verið kölluð "fyrsti femínistinn".
Flugbíll
Vel með farinn flugbíll, ekinn/floginn 480.000 km. er til sölu. Tilboð óskast.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.