Frétt — N?mi Fannsker — 11. 4. 2003
Torkennileg tákn sviðin í akra um allt land!
Tvö fórnarlamba táknsvíðinga á Suðurlandi

Mikil örvænting greip um sig meðal bænda um allt land í morgun þegar í ljós kom að torkennileg tákn hefðu verið sviðin í akra víðsvegar um landið - sennilega í skjóli nætur.

Svipaðir atburðir hafa oftsinnis átt sér stað erlendis, einkum í Bandaríkjunum og telja sérfræðingar að hér sé án efa um skilaboð frá erlendum lífstjörnum að ræða.

Táknin eru öll eins, í laginu eins og "X-B". Engar vísbendingar eru þó um hvað táknin merkja í raun, eða hverjir standa á bak við verknaðinn.

Tölvupóstur!

Tek að mér að bera út tölvupóst fyrir einstaklinga og fyrirtæki. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: