Frétt — N?mi Fannsker — 26. 3. 2003
Bandaríkjamenn ná úthverfi Bagdad á sitt vald
Hermennirnir klæddust báðir efnavopnavarnarbúningum er þeir tryggðu svæðið

Bandaríkjamenn hafa náð Hussdam-hverfi á sitt vald - en hverfið er nokkurskonar Grafarvogur þeirra Bagdadbúa.

Hverfið var reyndar sprengt í loft upp í Persaflóastríði hinu fyrra og aftur árið 1999, þannig að þar var engin byggð lengur. Hinsvegar er þetta stór áfangi og "móralskur sigur" fyrir bandaríska herinn.

Bandaríkjamenn tryggðu svæðið í morgun og hafa þegar hafið smíði hverfamiðstöðvar, kjörbúðar og félagsheimilis.

Kvenmaður

óskast til að þjóna þremur mönnum. Húsnæði fylgir. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: