Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 21. 3. 2003
Herir bandamanna ná nunnuklaustri á sitt vald
Abbadís Ingrid er fyrsti stríðsfangi bandamanna

Bandarískir og breskir hermenn náðu fyrr í dag með tveimur leiftursóknum valdi á hernaðarlega mikilvægu nunnuklaustri í norðurhluta Kuweit. Samkvæmt heimildum munu umræddar herdeildir hafa villst nokkuð af leið, en engu að síður tekist að ná völdum á klaustrinu eftir nokkurra klukkustunda bardaga við nunnurnar.

"Það má segja að þetta hafi verið lán í óláni", sagði Donald Rumsfeld í stuttu símaviðtali við Baggalút. "Þeir voru með bilaðan áttavita og villtust því af leið. Hins vegar er staðsetning klaustursins frábær og veitir gott útsýni yfir landamæri Suður-Íraks".

Þess má geta að mun fleiri nunnur en hermenn létust í þessum fyrsta bardaga nýhafinnar styrjaldar og má því með sanni segja að stríðið fari vel af stað hjá bandamönnum okkar Íslendinga.

Gefins

Kassavanur dvergur. Á sama stað er til sölu casio tölvuúr (ódýrt).
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: