Bush Bandaríkjaforseti stendur núi frammi fyrir alvarlegu vandamáli, en sem kunnugt er gaf hann Saddam Hussein í nótt tveggja sólarhringa frest til að yfirgefa Írak.
Síðan þá hafa yfirstjórn Bandarikjahers borist 19.467 tilkynningar þess efnis að Saddam hafi sést yfirgefa landið, ýmist einn síns liðs eða í góðra vina hópi. Þá hafa synir hans Qusay og Uday hvor um sig sést yfirgefa landið ríflega 5000 sinnum.
Gefðu jólagjöf sem gleður!
Tek að mér að ráða af dögum tengdamæður og eiginkonur. Athugið geðveiku jólatilboðin á www.leigumord.is.
Elli - s. 4983215
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.